Jæja þá er loksins komið eitthvað til þess að blogga um.......
þarsíðustu helgi fór ég til Parísar það var rosa gaman og ég fór með fríðu föruneyti þangað að halda upp á afmæli Brynju sem býr með mér ! þar gerðum við allt sem ég hef áður gert og nenni ekki að ræða hér ! ég tók alveg allan túristapakkann segjum það bara........
síðustu helgi fór ég svo til Nice að hitta Gyðu vinkonu okkar sem býr þar og Brynhildi vinkonu hennar og einnig hana Guðnýju eða G-unit eins og hún er betur þekkt sem ! við skelltum okkur til Mónakó og komumst næstum því til Ítalíu..... Gömbluðum í spilavítum og gerðum margt skemmtilegt ... eina manneskjan sem vann var Bára en hún vann 40 evrur sem er ekki slæmt ! en þannig er lífið mitt þessa dagana ég er hættur í skólanum og er bara að leika mér ! ég er líka ábyggilega á leiðinni heim núna á föstudaginn eða e-h en það kemur í ljós annars er ég ekki viss..... (ætla að vinna aðeins og fara aftur út....) en þar sem mér finnst frekar leiðinlegt að blogga þá ætla ég að hætta í bili ! en það eru myndir frá París á myndasíðunni hjá Hjördísi og það er tengill neðar á síðunni ! ciao....
12. febrúar 2007 klukkan 14:24
Hinrik Örn Hinriksson 5 athugasemdir
jæja þá er stóra stundin runnin upp það er komið út úr prófunum mínum en það versta er að ég er ekki alveg viss um hvað fallið er...... þannig að ég er ekki viss um að ég sé búinn að ná öllu...... það eru 2 greinar sem eru í hættu hjá mér ! sem er ekki nógu gott þannig ég er að reyna að finna út úr þessu... það eru semsagt ítalskan og málaratímarnir mínir sem eru ekki alveg að gera sig. sem ég er samt ekki alveg að skilja því ég var viss um að ég væri búinn að ná þeim, en ábyggilega falla í öðrum tímum sem ég hélt að hefðu ekki gengið nógu vel, en allt kom fyrir ekki og ég er alveg viss um að ég hafi náð þeim sem er náttla bara gott báðir þeir tímar sem ég hélt að ég myndi fallla í þeim náði ég og öfugt ! en nóg um það.....
það rigndi í fyrsta skiptið síðan ég kom hingað aftur og ekkert smá ég er samt að vona að það hafi bara tekið út sinn skammt í nótt og það verði skikkanlegt veður í dag ! ég er meira að segja búinn að tala við fólk sem er búið að fara á ströndina og eiga sér góðan dag þar! sem þýðir að það er ekki langt í að maður fari að skella sér þangað en hvernig er nú veðrið hjá ykur englarnir mínir og þið sem tókuð próf hvernig gekk ykkur ???
það er líka allt að verða brjálað á útsölunum hérna og það er valla hægt að ganga niðrí bæ vegna brjálaðs útsölufólks.... maður á í hættu á að láta traðka á sér án þess að fólk biðjist einu sinni afsökunar.... sem er ekki líkt frökkum upp til hópa !
en nóg í bili ég skrifa meira síðar ! Kv. Hinrik Örn
23. janúar 2007 klukkan 17:39
Hinrik Örn Hinriksson Engin athugasemd
það er alveg magnað að í byrjun janúar sé 20 gráðu hiti !við erm komin á stuttbuxur en það á samt víst að kólna í vikunni en hvað með það ! njóta þess meðan það endist. annars er mjög lítið í fréttum stelpurnar Bára og Bryna eru ennþá í heimsókn og verða hér til lengri tíma ! sem er bara ágætt þær eru yndælis stelpur ! en já ég prufaði í fyrsta skiptið nýju línuna í tramminum og skemmti mér ekki lítið ! svaka fínt og tekur ann á áður óþekkta staði ! alls ekki slæmt ! ég er ennþá að reyna að bögglast við að skrá mig í skólan ég er ekki alveg viss um hvernig það gengur ! en það kemur í ljós ! svo er það bara að sjá hvort ég næ að sækja um lín í tæka tíð eða hvort ég verð að koma heim og vinna fyrir skuldum sem er náttla ekki fyrsti kostur ! en þegar ég kom heim var búið að plana Parísarferð eftir 2 helgar sem er auðvitað ekki leiðinlegt en ég verð hinz vegar að fá jáyrði fyrir lánunum áðuren ég fer útí miðakaup ! en annars hef ég ekkert að segja þannig ég heyri í ykkur seinna !
20. janúar 2007 klukkan 17:48
Hinrik Örn Hinriksson 5 athugasemdir
já það er búið að leika ansi vel við mig byrjunin á þessu nýja ári ! búinn að fara til austurríkis í skíðaferð í viku og er núna kominn heim ! þessi ferð var geðveik svaka djamm og mikið skíðað ! ég fór á skíði í fyrsta og stóð mig eins og hetja ! ég datt bara 1nu sinni sem mér þykir nú bara nokkuð gott. en ég er semsagt kominn aftur til Montpellier og er að reyna að skrá mig í og úr kúrsum í skólanum..... sem eins og allt tekur marga daga hérna ! veðrið er geðveikt sól og blíða og það er stutt í að maður verði á stuttbuxum ! er allavega komið peysuveður eins og staðan er í dag ! ég er búinn að fá nokkrar einkunnir og er að ég held búinn að ná fyrir næstu önn ! en þar sem ég er svo upptekinn þá heyri ég bara í ykkur síðar hafið það gott ! ciao.....
p.s Aldís mín þú getur ekkert sagt með að vera lélegur bloggari.....
18. janúar 2007 klukkan 19:53
Hinrik Örn Hinriksson Engin athugasemd
jæja þá er kominn soldið langur tími síðan eitthvað fór inn á þessa síðu svo í staðinn fyrir að læra þá hef ég ákveðið að blogga aðeins ! eins og flestir vita er frekar stuttt í jólin, ég á eftir að kaupa allar gjafir og hef ekki hugmynd um hvað ég á að kaupa eða hvað ég á að eiða miklu, þar sem ég er nú ekki með bestu bankastöðuna eftir að vera hérna ! það er líka svo erfitt að þegar ég fer út að leita að gjöfum sem ég er búinn að gera 2svar þá finn ég bara alltaf eitthvað handa mér ég er búinn að finna 2 aðrar gjafir og svo hef ég ekki hugmynd um hvað ég á að kaupa handa hinum, önnur gjöfin er að vísu gjöf sem undanfarin ár hefur verið hvað erfiðust þannig ég er frekar glaður að vera laus við hana! en það sem verra er að núna finn ég alveg svakalega mikið sniðugt fyrir þessa sömu manneskju og ekkert handa hinum ! sem er aðeins verra ! en ég er að vonast til að jólasveinninn komi mér til bjargar og segi mér hvað sé sniðugt að kaupa handa öllum hinum ! en þeir sem eru glöggir sjá að það eru komnir 2 tenglar yfir á myndasíður hjá stelpunum þannig að þar er bæði hægt að sjá hinar ýmsustu djamm myndir og örugglega eitthvað af heimilinu líka ! annars er ég að fara í 5 próf núna í vikunni 2 á þriðjud. 1 á föstud. og 2 á laugard. þannig ég er í svaka stuði (panic) að reyna að skilja glósurnar mínar og annarra en það gengur misvel..... ekki afþví að það er lítið af þeim neinei heldur komst ég að, að sum ef ekki mörg þessara orða hjá mér eru ekki til í frönsku þannig það má segja að ég hafi búið mér til eitthvað álfamál fyrir sjálfan mig sem enginn skilur ekki einu sinni ég ! en það er alltaf eitthvað að verða jólalegra hérna það er kominn smá ameríku/íslands fílingur í þetta mikið af ljósum og blikkandi í þokkabót ! þetta er samt mjög flott en samt soldið kitch en það er annað mál. Við héldum smá partý á föstudaginn sem var bara ansi fínt ! og mikið af amerískum vinum okkar voru í bana stuði (við að vísu líka !) þannig það var mjög gaman. Það var síðasta djammið fyrir prófin svo að nú er um að gera að leggjast yfir bækurnar!! þangað til næst kv Hinrik Örn
10. desember 2006 klukkan 22:05
Hinrik Örn Hinriksson 4 athugasemdir
já þó maður missi nú einu sinni af laufabrauðsgerð þá er það nú ekki dauðinn... mér þykir heldur leiðinlegra að missa af Sörugerð í Iðalindinni, þar sem ég er nú búinn að vera fastagestur í laufabrauðinu í 20 ár og ekki misst úr 1 sinni þá finnst mér nú í lagi að ég sleppi þessu eina skipti !!! En þið eruð nú líka að missa af miklu skal ég ykkur segja ! til dæmis má nefna vínkynninguna síðustu helgi sem var alger snilld og mikið í hana lagt ! mjög skemmtileg og mjög jólalegt að gera svona hérna á þessum slóðum ! annars er alltaf eitthvað í gangi hérna á torginu fyrir ofan hús hjá okkur tónleikakvöld í kvöld og á morgun svo er jólamarkaðurinn framundan sem á að vera mjög flottur. Ég ákvað að lifa mig soldið inn í franska menningu og ég og Kristín fórum á tónleika hérna í "næsta" húsi með Tété sem er mjög skemmtilegur franskur tónlistarmaður.... það var pakkað út úr húsi og allir skemmtu sér mjög vel, ég var mjög sáttur og ætla að kaupa diskinn um leið og evran lækkar eitthvað ! annars er ekkert að frétta, ég held að kennarinn minn í listasögu hafi tekið eftir að ég er ekki alveg nógu góður í þessu öllu saman hjá sér svo hún kyppti í eitthvern af nemendum sínum og fékk þessa yndislegu stúlku til að taka mig að sér og hún er búin að hjálpa mér ansi mikið þannig að ég hef allavega eitthverja hugmynd um hvað það er sem ég á að vera að gera í augnablikinu.
Ég er ekki að nenna meiru í bili ég heyri í ykkur síðar gott fólk ! Kv. Hinrik Örn
05. desember 2006 klukkan 03:15
Hinrik Örn Hinriksson 3 athugasemdir
hæhæhæ, gott fólk nær og fjær ! við erum herna i góðu yfirlæti i 18 gráðu hita ! nýkomin af vínsmökkun á aðaltorginu sem er i 3 minútna fjarlægð frá húsinu okkar. við stóðum þarna i eitthverja 3 klukkutima gangandi milli bása að smakka hin ýmsustu vín frá héraðinu.... mörg mjög góð og nokkur alveg svakalega ekki góð ! það er búið að kveikja á öllum jólaljósum i bænum þannig að þessi borg verður víst ekki jólalegri þar sem það snjóar næstum aldrei hérna ! það er allt voða gott að frétta af okkur en prófin eru að fara að byrja hjá mér þannig ég er ekkert svakalega ánægður með það ! en svona er víst lífið ! það þarf víst líka að hafa sína galla ! vorum í svaka Íslendingapartýi í gær sem var rosa skemmtilegt og það enntist náttúrulega fram undir morgun, svo að í dag er maður frekar slappur. ekki er mikið annað að frétta en ég á eftir að setja inn fleirri myndir á næstu dögum þannig þið verðið bara að bíða spennt en þangað til næst bless og bæ, Hinrik Örn
03. desember 2006 klukkan 01:07
Hinrik Örn Hinriksson Engin athugasemd
Þrír fræknir ferðalngar héldu til fyrirheitnalandsins í byrjun september, með lof og góð fyrirheit um að stofna bloggsíðu svo vinir og vandamenn gætu fylgst með. Þegar út var komið vandaðist málið heldur. Brösulega gekk að finna íbúð svo flakkað var á milli hótela fyrstu vikuna. Draumaíbúðin fannst á endanum, 2 Rue Serane, staðsett í miðbæ Montpellier. Við komumst að því seinna að íbúðin var ekki svo mikill draumur (en ekki misskilja mig, hún er alls ekki slæm!). Jæja, smátt og smátt fórum við að koma okkur fyrir. Inn á heimilið komu aldargömul húsgögn frá húsráðanda, tvö borð, þrír stólar, tveir skápar.... restin var fengin úr IKEA, sem hefur reynst okkur guðsgjöf hér í Frakklandinu. Þaðan var dröslað heim í tramway, svefnsófa, stólum, borði, alls kyns eldhúsbúnaði og öðru nauðsynlegu, það nýjasta er rúmið hans Hinriks. Internettenging var eitt af því sem átti að vera fyrst á dagskrá þegar við fengum íbúðina, eitt af nauðsynjum lífs okkar hér. Við skráðum okkur hjá fyrirtæki nokkru sem ber nafnið Neuf vonglöð um að við værum vel tengd eftir 2-4 vikur. En aldeilis ekki, biðin varð endalaus! Við einangruðumst frá umheiminum þar sem okkar aðalsamkiptamáti við vini okkar og fjölskildu átti að fara fram í gegnum veraldarvefinn. Við héldum lengi í vonina, Phonehouse fékk ansi margar heimsóknir frá okkur en ekkert gerðist. Þar til að í gærmorgun var bankað á hurðina. Svefndukkin heyrði ég út undan mér að Hjördís fór til dyra. Ég heyrði franskt babl og svo var hurðinni lokað. Módemið okkar var komið! Eftir 9 vikna bið erum við orðin vel tengd við umheiminn á ný! Guði sé lof, netstofur eru dýrar og í skólanum nennir maður ekki að hanga allan daginn. Svo nú stöndum við við orð okkar. Voilá, bloggsíða. Ég vona að þið njótið vel.
Bisous, Kristín
01. desember 2006 klukkan 17:19
Hinrik Örn Hinriksson 2 athugasemdir
jæja þá er loksins komid að því að við erum komin með internetið hér mun ýmislegt koma fram skemmtilegt og leiðinlegt en það er annað mál !!!! Það nýjasta í fréttum er að ég er kominn með rúm loksins loksins en það þarf að venjast því þar sem ég er búinn að sofa á gólfinu í 2 mánuði ! en þetta er frábært ! nuna er eiginlega allt komið sem vantar svo við erum svaka glöð ! Veðrið er alltaf jafn gott ! það er 18 gráður i dag svo það er ekki svo slæmt !
nýja tramlínan á að opna núna í miðjum des. það verður gaman að sjá hvert hún tekur mann ! allavega eru framkvæmdirnar hérna fyrir framan hús að gera mig vitlausan ! ég nenni eila ekki að gera meira í fyrstu færslu þannig að bless og bæ ! kv. Hinrik Örn
30. nóvember 2006 klukkan 17:39
Hinrik Örn Hinriksson 1 athugasemd